Handboltanámskeið á Klaustri dagana 15.-16. janúar

Handboltanámskeið 15.–16. janúar – pizzapartý og lokahóf UMFÁS með HM-leik Íslands

Handboltanámskeið 15.–16. janúar – pizzapartý og lokahóf með HM-leik Íslands

Ungmennafélagið ÁS boðar til handboltanámskeiðs dagana 15.–16. janúar. Námskeiðinu lýkur með pizzupartýi og lokahófi haustannar 2025 föstudaginn 16. janúar, þar sem hópurinn kemur saman og horfir á Ísland – Ítalía, fyrsta leik Íslands á HM 2026.

Lokahófið verður haldið föstudaginn kl. 17:00 í Kirkjubæjarstofu. Þar verður notaleg stemning, sameiginlegt áhorf og pizza fyrir þátttakendur.

Allir sem tóku þátt í æfingum hjá UMFÁS í haust eru velkomnir á lokahófið.

Til að tryggja að nóg sé til af pizzum er mikilvægt að skrá sig: https://www.abler.io/shop/umfas

  • Ef barnið ætlar eingöngu í pizzupartýið, er hægt að skrá það sérstaklega í partíið í Abler.

  • Það hjálpar skipuleggjendum að áætla fjölda og panta rétt magn.

Nánari upplýsingar má finna í auglýsingu um viðburðinn.