Ágúst: „Það var eins og jörðin titraði undan trommuslættinum“
Ágúst Úlfar Sigurðsson var staddur í miðbæ Reykjavíkur þegar skjálftinn varð 17. júní. Þetta er hans saga.
Við hjónin höfðum farið niður í miðbæ Reykjavíkur til að fylgjast með 17. júní hátíðahöldunum. Vorum stödd í Vonarstræti þar sem norsk skólahljómsveit marséraði með trommuslætti og lúðrablæstri. Ræddum okkar á milli hve trommuslátturinn væri öflugur því það var eins og jörðin titraði. Um kvöldið heyrðum við fréttir af jarðskjálftanum og lögðum þá saman tvo og tvo.