Töðugjöld eru haldin árlega á Hellu í ágúst
Síðustu helgina í ágúst ár hvert fer fram bæjarhátíðin Kjötsúpuhátíð í Rangárþingi eystra. Á hátíðinni bjóða bæjarbúar og fyrirtæki upp á súpu, fjöldi skemmtiatriða og viðburða eru í boði. Á fimmtudeginum byrjar hátíðin með viðburðum fyrir börnin og um kvöldið er uppistand eða tónlistardagskrá í tjaldinu á miðbæjartúninu. Íbúar skreyta garða og götur eftir litum hverfanna. Á föstudeginum bjóða bæði fyrirtæki og íbúar uppa á súpu, fyrirtækin flest yfir daginn og íbúar um kvöldið þar sem kallað er súpuröltið. Viðburðir fyrir bæði börn og fullorðna eru yfir daginn. Á laugardeginum er skemmtidagskrá í tjaldinu frá miðjum degi fram á nótt. Fjölskyldudagskrá yfir daginn, kvölvaka og ball um kvöldið. Á sunnudeginum er hin árlega menningarganga og skemmtun fyrir börnin.
17.júní er haldinn hátíðlegur víða um sveitarfélagið. Dagskrá er bæði á Hvolsvelli og í félagsheimilunum Goðalandi, Heimalandi og Njálsbúð. Á öllum stöðum er boðið upp á kaffiveitingar, hátíðarhöld og skemmtun fyrir alla aldurshópa.