Erla: „Hélt að trukkur hefði keyrt á húsið“

Erla Sigurðardóttir var 33 ára þegar skjálftinn varð og var stödd í Grafarvoginum í Reykjavík. Þetta er hennar saga.

Faðir minn Sigurður Guðmundsson heitinn var nýkominn heim úr vinnu og hafði skellt sér í sturtu til þess að fara við opnun sýningar um Kristnihald í 1000 ár. Þegar hann stendur í sturtunni ríður skjálftinn yfir og hans fyrsta hugsun var að trukkur hefði keyrt á timburhúsið sem stendur á steinsteyptum bílskúr. Ég sat í góðum stól með fæturnar á gólfinu. Ég fann skjálftan vel og hugsaði fer þetta ekki að vera búið?