Jóhanna Erla: „Fullorðna fólkinu brugðið“

Jóhanna Erla Ólafsdóttir var í Þorlákshöfn þann 17. júní 2000 þegar fyrsti skjálftinn varð. Þetta er hennar saga.

Ég var á skemmtun í íþróttahúsinu í Þorlákshöfn með þrjá yngstu syni mína, Skari skrípó var að sýna töfrabrögð og var fljótur að bregðast við og spurði krakkana hvort þetta hefði ekki verið gott töfrabragð hjá sér sem þau voru auðvitað sammála um. Það var því fullorðna fólkinu sem var brugðið.