Það glamraði í grjótinu

Þessi saga er nafnlaus en viðkomandi var 27 ára árið 2000 þegar skjálftarnir urðu:

Var á þjóðhátíðarskemmtun í Kambsrétt hjá Lýtingsstöðum. Allt í einu fór flauta á bíl vinar míns í gang, var með rafmagnsopnun. Stuttu seinna gekk skjálftinn yfir. Fólkið var að spjalla saman á meðan að grillið var að hitna. Allt í einu fer að glamra í grjótinu og segir þá ein í hópnum að allir skulli setjast því að hún vissi hvað var í gangi. Um leið finnur maður að jörðin gekk í bylgjum undir manni. Seinni skjálftinn þá var ég komin upp í rúm og var að fara að sofa. Þá heyri ég hvin á undan skjálftanum og þegar hann gekk yfir þá þaut ég í dyrnar á herberginu og þá kallar bróðir minn til mín og segi mér að vera kyrri þar sem ég væri.