Vignir: „Jörðin gekk í bylgjum“
Vignir Jónsson var staddur ásamt konu sinni í sumarhúsi þeirra í Svínhaga 2 á Rangárvöllum. Þetta er þeirra saga.
Ég var úti við að þvo bílinn þegar jörðin kom í bylgjum að mér,ég var með nmt síma í bílnum hringdi strax í neyðarlínuna og sagði mikinn skjálfta vera hjá okkur,stúlkan ætlaði ekki að trúa fyrst sagði ekkert en komst svo ekki lengra, ó ó ó jú hér skelfur allt hrópaði hún. Konan mín var inni að baka vöfflur fannst svo skrítið hvernig fuglarnir úti létu eins og ránfugl væri eftir þeim, þá för allt að skjálfa vatn í stórum potti á eldavél skvettist út um allt allar skúffur og skápar opnuðust hún kastaðist milli borða og komst ekki út, aðeins eitt glas datt og brotnaði.
Þetta er okkur mjög minnisstætt og ekki tæmandi saga því þegar konan komst út mundi hún eftir að kveikt var á gaseldavélinni fór aftur inn til að slökkva á henni og þurrka upp vatnið þá kom sterkur eftirskjálfti sem var líka mjög óþægilegur, en húsið er úr timbri og hristist vel en ekkert skemmdist.