Göngum saman í Skaftárhreppi - Meðalland

Ungmennafélagið ÁS hefur sett saman skemmtilega göngudagskrá fyrir sumarið.

Boðið verður upp á 6 göngur. Ganga nr. 3 á dagskránni verður þann 4. júlí og er göngustjóri Kristín Lárusdóttir.

Nánari upplýsingar um gönguna verða aðgengilegar á Sportabler sem og á Facebook síðu Ungmennafélagsins ÁS.